Hæ hæ

08.11.2006 11:08:32 / Brynja

HÆTTAR!!!!!!!!!!!!!

Við erum  hættar með síðuna! byrjum kanski á nýrri síðu seinnna;)

Takk fyrir.....

    kv. Brynja og Agnes

» 1 hafa sagt sína skoðun

06.11.2006 14:35:36 / Agnes

BREYTINGAR

Jæja loksins ákváðum Brynja og ég að spíta í lófana og breyta þessari blessaðari síðu. við ætlum bæði að breyta útliti hennar og já bara öllu í kringum þessa síðu. við ætlum að finna fullt af nýju til að setja inná hana og jafnvel taka eitthvað gamallt út síðan ætlum við að vera virkari í að blogga og setja inn myndir og allt það. Finnst ykkur ekki vera komin tími til ?????? ef þið hafið hugmyndir um hvað má bæta og hvað hægt er að setja inná síðuna endilega kommenta;) því miður getur verið að það koma engar myndir úr sumarbústaðnum því ég var veik og þurfti að fara á laugardeginum aftur heim, en kannski næ ég að redda einhverjum myndum hver veit? allvega hef ég ekki meira að segja í bili. fylgist með breytingunum. við ætlum að reyna að hafa þær sem mestar ;)

kv.Agnes


» 0 hafa sagt sína skoðun

03.11.2006 15:58:30 / Agnes

Til hamingju með afmælið ástin mín

ég gat ekki bloggað  í gær því það var skóli og svo strax í bæin til að fara útt að borða með fjölskylduni hans Óla sem átti afmæli í gær. við fórum á veitingastaðin A. Hansen. Allveg æðislegur matur þarna vá......... ég mæli með þessum stað ef þið viljið fara FÍNT út að borða. síðan fórum við Óli í bíó á níjustu Jet lei myndina hún er geðveikt góð. síðan í dag verður farið upp í sumarbústað það verður allveg gg. ég lofa að koma með myndir ;)

en til hamingju með afmælið Óli minn, ég elska þig ;)

kv. Agnes


» 2 hafa sagt sína skoðun

23.10.2006 21:51:19 / Brynja

NÝTT Í MÁNAÐARINS!!!!!!!!

Hæ hæ það er komið nýtt í mánaðarins fyrir októbermánuð....!!!endilega kíkjið....

En annars þá voru próf hjá mér í seinustu viku og gegg það bara ágætlega en er ekki búin að fá einkanir út úr öllum prófunum og svo eiga kennararnir eftir að setja þetta saman við heildar einkunn og eitthvað:S

En eftir seinasta próf á fimmtudaginn þá fór ég í hólminn og var þar alla helgina eða næstum því...........á föstudaginn vaknaði ég snemma og fór í grunnskólann til að hitta vini mína í 10.bekk því ég var á einhverju flippi og fór í íslensku og samfélagsfræði með þeim en þurftir auðvitað ekki að gera neitt og svo líka vegna þess að rétt um klukkan 13:00 þá fór ég í Borganes til Elínar því að um kvöldið var ball á Skaganum með Spútnik og var Hugrún vinkona Elínar búin að kaupa miða handa okkur....þegar komið var í Borganes þá skelltum við ( ég og Elín ) okkur í heitapottinn heima hjá henni......:D:D:D:D:D...svo fórum við á smá rölt um Borgarnes....um kvöldið fengum við pitzzu í matinn og svo gerðum við okkur tilbúnar fyrir ballið.....svo fórum við með rútu á ballið og það var gg stuð:D:D:D:D:D:D:D:D Elín, Hugrún og ég dönsuðum allt ballið:D ballið var búið klukkan 2 og þá fórum við í Borganes ( ég gisti hjá Elínu )..

Daginn eftir fór ég aftur í Hólminn og skemmti mér ágætlega þar en hitti ekki marga eins og ég ætlaði mér en það skiptir ekki máli þar sem ég kem hvorteðer aftur eftir 2 vikur og verð þá i 4daga.....

Fór svo aftur á Laugar á Sunnudaginn..........

Í gærkvöld byrjaði svo að snjóa og það hefur verið snjókoma síðan með smá hléum en núna er gg snjór úti:D:D:D:D:haha::haha::haha::haha: og núna ligg ég bara upp í rúmi að blogga:D;)

en það fer að koma kvöld kaffi held þetta sé nóg í bili

ble ble

Brynja


» 1 hafa sagt sína skoðun

18.10.2006 21:48:17 / Agnes

GG á Halloween

Hæ hæ ef það var ekki gg á ballinu þá veit ég ekki hvað. það eru líka helling af myndum hér


http://www.nfsu.is/myndir.php?a=181

http://sudurland.is/ljosmyndir/gallery.asp?categoryid=154

það eru myndir af mér þarna svo endilega kíkja ;)
 síðan dagin eftir var farið í bæjin þar sem ég hitti Berglindi og við fórum að versla í kringluni :p við kíktum líka í nýja Ikea og það er ekki eðlilegt hvað þetta er stórt. Ég og óli fórum síðan í bíó um kvöldið. við fórum á World Trade Center, hún er góð samt solldið löng. Síðan var bara  sunnudagurinn tekin í leti og haft það nice.

í dag fór ég í ensku tíma og það var nafnakall eins og venjulega. Eftir það var okkur sagt að drulla okkur út í íþróttahús. þegar við komum þangað komust við að því að þá átti að vera íþróttamót á milli kennara og nemenda. það var kept í brenibollta, badmington, körfubollta, boðhlaupi, og reypitogi nemendur unnu 6-2

hér eru myndir frá því ;)

http://www.nfsu.is/myndir.php?a=183


» 1 hafa sagt sína skoðun

12.10.2006 10:18:38 / Brynja

allt og ekkert!!!

Hæ hæ ég er bara að reyna vera dugleg að blogga ( við sjáum til hvernig það fer )......Núna er ég í Vst ( stitting á orðinu Vinnustofa ) svona tímar sem maður gerir heimaverkefni í. Það var Freaky Hairday hérna á þriðjudaginn og má segja að sumir voru soldið skrautlegir.................Strákarnir t.d. mistu sig aðeins með rakvélina því þeir voru allir hálf rakaðir..en reyndar var einn með broskall á hnakkanum og það var bara fynndið..............
En annars þá hef ég ekki mikið að segja en fannst samt að ég þyrfti endilega að blogga...
Í næstu viku byrja prófin:$:$:$ en held samt að mér eigi eftir að ganga þokkalega........Svo fer ég heim á fimmtudaginn eftir seinasta prófið:D:D:D:D:D:D:D:D:D:D:D Bergdís er reyndar að fara keppa í körfubolta, Berglind er að fara í sumarbústað og systir mín og fjölskylda líka en held annars að flest allir aðrir verði heima ( vona það allavega )....................
Svo var ég að spjalla við hana Agnesi á mánudaginn og aðeins á þriðjudaginn og þar sem við höfðum ekki talað lengi saman í síma þá töluðum við þó nokkuð lengi..........

                     en þarf að fara í næsta tíma
 
                            ble ble
                        
                                Brynja

» 1 hafa sagt sína skoðun

09.10.2006 20:00:27 / Agnes

loksins.............

Hæ hæ þap var gg á bíldudal. við fórum í pollin ( það er sona náttúrulegur heitapottur ) gg gaman. það var farið í leðjuslag og svaka. síðan var þetta bara chill helgi. það var ekki gert neitt spes. síðan var bara brjálað að gera í seinustu viku. próf og skila öllum verkefnum. síðan núna er ekkert að gera. við vorum bara að horfa á mynd í ensku. síðan er engin heimalærdómur. loksins fær maður smá frí til að slaka á. Næsta föstufdag er svo Halloween ballið það verður gg. það verða náttla einhverjar myndir þaðan en núna ætla ég að fara að dunda mér við að setja inn myndir frá Bíldudal ;)

kv. Agnes


» 1 hafa sagt sína skoðun

05.10.2006 11:06:49 / Brynja

er bara í Dönsku!!!!

Hæ hæ ég ákvað að blogga aðeins hérna á þessa síðu.........ég held að það sé að koma tími til að blogga. En allavega þá er ég búin að vera gera margt t.d. þá var skólaferðalag í seinustu viku.........:Dlagt var á stað um kl 14:00 á þriðjudaginn, við fórum í Dimmuborgir og löbbuðum aðeins um þar og svo fórum við líka í Jarðböðin ( svona eins og blálónið ) svo var farið í skjólbrekku ( þar sem við gistum ).....fyrst komum við okkur fyrir ( en við sváfum öll i tvem sölum á dínum ) og svo var komin matur og einhvertíma eftir matinn var haldið smá kvöldvöku, farið í leiki og hljómsveitin spilaði líka. Þegar við fórum að sofa var soldið allir í kremju. Svo daginnn eftir vöknuðum við gengum frá og fengum okkur að borða og svo var lagt á stað aftur á Laugar.....................

Svo tók bara lærdómurinn við.............

Seinustu helgi fór ég svo í Stykkishólm og vá hvað það var ynidslegt að koma heim að hitta alla............En ég fer svo aftur í hólminn eftir 14daga:D:D:D:D:D:D:D..........

          en þá er þetta bara svona til að segja langa sögu stutta blogg

                    það var annars ekki meira

                         ble ble

                            Brynja


» 0 hafa sagt sína skoðun

28.09.2006 22:31:21 / Agnes

Bíldudalur á morgun...............

Hæ hæ hér er ég að láta mér leiðast. er að bíða eftir því að þurkarin sé búin svo ég geti klárað að brjóta saman þvottin. vá hvað ég er dugleg. ég lærði á þvottavélina og þurkaran, tók mig til og fór að þvo. maður var farin að sakna sumra flíka þau voru alltaf á botninum í körfuni og það hlaðaðist alltaf ofan á þau. Síðan á morgun eftir skóla kemur óli að sækja mig og við förum á Bíldudal með besta vin hans Ingva sem á kærustu þar. Það verður geðveikt. og það verða teknar myndir og ég skrifa um  allt eftir helgi.

kv. Agnes ;)


» 1 hafa sagt sína skoðun

24.09.2006 18:57:22 / Agnes

sniiiilllllllllld

Það var gg í kórbúðunum um helgina. þá kinntist maður krökkunum allmenilega og það var bara geðveik stemming allan tíman. síðan var maður busaður aftur inní kórin. Sko á fyrsta kvöldinu var okkur busunum skipað að fara úr efstu flíkini snúa henni við þannig að saumarnir snéru út og svo áttu miðarnir að snúa framm við áttum að vera sona þangað til þessu væri aflétt síðan áttum við einnig að borða allt með gafli, og þá bókstaflega ALLT.... Síðan dagin eftir í kaffinu áttum við að standa í röð eftir stafrófsröð og þá var búið að semja einhverja sögu um okkur. ég átti að hafa sótt um í bachelornum og síðan ekki getað tekið þátt því tímin henntaði mér ekki, þá var bara frestað þáttunum því ég var allveg ómissandi í þáttin. síðan var komið með sona spreybrúsa og við skírð í nafni kórsins, náfni kórstjórans og heilögu Halldóru. svo fengum við vöflur og við vorum komin í kórin :D það gerðist meira en frá því verður ekki dagt ;) Það sem gerist í kórbúðum verður í kórbúðum ;)

koma myndir seinna ;)

kv. Agnes


» 1 hafa sagt sína skoðun

15.09.2006 16:19:26 / Brynja

NÝTT NÝTT!!!!!!!!

Hæ hæ ja loksins hittumst við Agnes á msn og gerðum mánaðarins endilega skoðið.

Annars er allt gott að frétta af mér. ég er bara að fara á Akureyri um helgina með Heiðu og Elínu.

  það var ekki meira

        ble ble

              Brynja


» 1 hafa sagt sína skoðun

06.09.2006 15:09:32 / Brynja

Laugar!

já það er komin soldið síðan seinast.

þá held ég það sé komin tími til að skrifa smá blogg um þessa skóla veru mína á laugum. Ég kom hingað á laugar á þriðjudaginn í seinustu viku ( 29.ágúst ). Daginn eftir var fyrsti skóla dagurinn og sko þau sem eru á 3 og 4 ári þau eru böðlar og meiga láta okkur busana gera allt fyrir sig til dæmis þá var ég látin ná í mat fyrir nokkra og þrisvar þurfti ég að þrífa mat salinn. Svo þegar böðlarnir voru að sýna okkur skólann þá kinntist ég stelpu úr Borgarnesi sem heitir Elín og svo kinntist ég líka herbergisfélaganum hennar sem heitir Andrea og svo heitir sú sem er með mér í herbergi Íris. á miðvikudagskvöldinu var smá kvöld leikfimi. svo kl 07:00 vorum við vakin í morgun leikfimi. En allavega svo á föstudaginn var Busa víxlan. Í seinasta tímanum þá komu böðlarnir og ráku okkur út og við fengum 4mín til að skipta um föt. Svo vorum við öll látin standa upp við hús vegg með ennið í vegginn, þá var nafna kall og þegar það var sagt nafnið manns átti maður að leggjast í grasið með hausinn niður og rétt áður en nafnið mitt var sagt var komið með vatnsbyssu og sprautað í dá góðann tíma á mig. Svo þegar allir voru lagstir niður þá áttum við að standa upp labba tíu skref og fara niður á hnén og vera í beinni línu, þá var byrjað að setja helling af ógeði í hárið á okkur til dæmis Síróp, hrásalat, tannkrem, jarðaberjagraut, kjötfars eða eitthvað svoleiðis, hellt á okkur hveiti og kakó og fleira. Svo fórum við í geggnum svona braut sem var að skríða í grasinu, velta sér upp úr polli og hoppa í dekk sem voru ofan í polli. Svo var okkur öllum troðið inn í smók ( staðurinn sem fólk má reykja á ) þar voru við látin hoppa og syngja lagið ÉG VEIT UM LAG SEM FER Í TAUGARNAR Á MÉR, TAUGARNAR Á MÉR TAUGARNAR Á MÉR OG GETTU HVAÐ ÞAÐ ER. þar var líka sprautað á okkur ískalt vatn. Svo lá leið okkar út að tjörn, þar vorum við látin sverja eið og drekka ógeðsdrykk og svo rúsínan í pulsuendanum : við vorum látin hoppa eða sumum kastað út í ískalda tjörnina ( ég hoppaði ) og látin synda yfir á hinn bakkann og þegar ég kom upp úr var mér svo kalt að ég fann ekki fyrir kuldanum lengur. Svo allir þeir sem voru með einhvern kjaft eða gerðu ekki það sem þeir áttu að gera fengu auka ferð í tjörnina ( ég var ekki í þeim hópi ). En annars held ég að það hafi ekki verið mikið meira nema að ég kem heim í næstu viku.

               ble ble

                  Brynja Lauganemi


» 0 hafa sagt sína skoðun

30.08.2006 12:05:40 / Agnes

komin tími til

Jæja vá hvað það er langt síðan einhver bloggaði hérna marh. En alla vega þá byrjar maður á dönsku dögunum.

Dönsku dagarnir sjálfir voru frekar misheppnaðir. Það var nákvæmlega ekkert að gera á dagin. Engir básar eins og hafa alltaf verið engin leiktæki eða neitt. Síðan kíktum við Brynja í félagsmiðstöðina X-ið. Þetta var eitt mesta sjokk og ég held að ég hafi aldrey verið eins reið. Sko nemendur höfðu málað á veggina og mótað félagsmiðstöðina í gegnum árin og þar að meðal var mynd sem ég málaði. Þegar við komum inn þá var búið að mála yfir ALLT eyðileggja allt með einhverjum ógeðslegum grænum lit og síðan sett gömlu stólana inn í salin ( þetta var bíó fyrir sona hundrað árum eða eitthvað ) og það var verið að endurskapa gamla bíóið. Síðan spilasalurinn þar var búið að mála allt hvítt og sett gamlar myndir af Stykkishólmi. það var eyðilagt allt bara fyrir eina helgi. ég meina var ekki hægt að sleppa að mála yfir margra ára minningar !!!! síðan bryggju ballið þar var harmonikutónlist enda voru allir unglingarnir bara að labba eftir aðalgötuni þangað til að flugeldasýningin var. Þá byrjaði annað ball sem var með allmennilegri tónlist. það var stuð. þar byrjaði ég líka með honum óla mínum sem er algjört yndi.

Nú í seinustu viku byrjaði skólin hjá mér og það er gg að vera í þessum skóla. Rosalega þægilegur skóli skemmtilegt fólk síðan er kórin allgjört æði !!!! það er gg gaman við erum að syngja rosalega flott lög eitt úr hárinu t.d. síðan verður maður busaður núna á næsta föstudag :S :D Síðan í dag áttu allir busar að mæta með bindi í skólan því annars irðu þau sem kommu ekki með bara busuð ennþá meira.

Meira hef ég ekki að segja núna en það koma fljótlega einhverjar myndir. ég er ekki ennþá búin að fá myndirnar frá Belgíu :|:|

kv. Agnes ;)


» 1 hafa sagt sína skoðun

18.08.2006 16:42:46 / Brynja

Den Danske Dager ( eða hvernig sem þetta er skrifað á dönsku )

Hæ hæ já þá eru komnir danskir dagar eða sko þeir verða settir í kvöld og svo er líka hverfagrillið í kvöld og hérna einhverjar keppnir eða eitthvað á íþróttavellinum en allavega þá er ég að vinna um helgina en ég ætla ekki að láta það skemma neitt fyrir mér ( ég fer sko ekki snemma að sofa ). Ég held að hún Agnes ætli að láta sjá sig hérna einhver tíma í dag eða kanski kemur hún á morgun eða eitthvað ég bara veit það ekki allveg en ég veit allavega að hún ætlar að koma.

      þá held ég að þetta sé komið nóg í bili

                ble ble

                   Brynja 

           velkomen på danske dager


» 1 hafa sagt sína skoðun

13.08.2006 22:59:16 / Agnes

styttist í dönsku dagana og SKÓLAN :D

Hæ hæ. loksin kemur það sem maður er búin að vera að bíða eftir í allt sumar :D dönsku daarnir og svo byrja í FSU, ógeðslega verður það gaman., get varla beðið. núna er maður bara að vinna að krafti . er búin að vera veik núna í viku ( ekki gaman ) var með einhverja flensu. annars er þetta bara búið að vera fínt. en ég þarf að fara með Gunna  ná í mömmu uppá flugvöll.

kv. Agnes ;)


» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 6